Saturday, December 14, 2002

Ég fór í morgun í Brynjudal að höggva jólatré með pabba mínum. Við fundum náttúrlega fallegasta jólatréð:)*
Æææ við ætluðum niðrí bæ líka í dag, en það er svo leiðinlegt veður að við hættum við:( Ég vil fá snjó!!

Stundum langar mann að vera á einhverjum stað, en þorir ekki á hann eða maður er ekki velkomin þangað, eða maður reyndi að láta vita að maður vildi fara þangað en fékk enginn viðbrögð..æ vá..

Friday, December 13, 2002

Núna missi ég mig í einhverju rugli og skrifa og skrifa og skrifa og það bara verður svona stöff á 2 mín. fresti;)!! En já....ég er orðin svo athyglissjúk að það er EKKI fyndið! ..verð örugglega lamin bráðum.
Og skilurðu á Réttó-Hvassó balli fyrir ekki svo löngu, gerði ég mig að fífli fyrir framan..alþjóðina (Hvassó) dansaði uppá sviði og læti, og það er bara non-stop síðan þá..jaaa hérna..!!